Landmark fasteignamiðlun og Monika Hjálmtýsdóttir, lögg. fasteignasali kynna útsýnisíbúð á 7. hæð við Engihjalla 19 í Kópavogi.
*Vel skipulögð þriggja herbergja, 90 fm íbúð með sér geymslu í kjallara.
*Tvennar svalir eru í íbúðinni, austursvalir frá svefnherbergi og suðursvalir frá stofu.
*Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni með sér tengi.
*Yfirstandandi eru endurbætur á ytra byrði hússins. Áætluð verklok eru árið 2023. Múrviðgerðir hafa verið gerðar og verður húsið næst málað.
Eignin skiptist í hol, baðherbergi, borðstofu, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, tvennar svalir, sér geymslu í kjallara.
Nánari lýsing
Hol er með fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með salerni, baðinnréttingu og rúmgóðri sturtu.
Hol fyrir framan eldhús er tilvalið sem borðstofa, parket á gólfi.
Elhús er með innréttingu með góðu geymslurými, keramik helluborði, háfi yfir úr burstuðu stáli, bakarofni í vinnuhæð og er tengi fyrir ísskáp og uppþvottavél, parket á gólfi.
Stofa er björt og rúmgóð, parket á gólfi. Útgengi á svalir í suðurátt.
Svefnherbergi I er rúmgott með fataskáp, dúkur á gólfi.
Svefnherbergi II er rúmgott með stórum fataskáp, dúkur á gólfi. Útgengi á svalir í austurátt.
Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni með sér tengi fyrir þvottavél.
Sér geymsla í kjallara með áföstum hillum.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Allar nánari upplýsingar veita:
Monika Hjálmtýsdóttir, viðskiptafr., lögg. fasteignasali
í félagi FF / [email protected] / 823-2800
Júlíus Jóhannsson, lögg. fasteignasali
í félagi FF / [email protected] / 823-2600
Láttu okkur selja fyrir þig! Við veitum þér sölu- og kaupráðgjöf án skuldbindingarUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA